Um Ævintýraeyjuna

Í sjöunda sinn á jafn mörgum árum fer Olís nú af stað með sumarleikinn Ævintýraeyjan. Vinningarnir í Ævintýraeyjunni árið 2011 eru glæsilegir hvort sem um er að ræða stimpilleikinn, vikulegu vinningana sem og aðalvinninga sumarsins.

Samstarfaðilum Ævintýraeyjunnar er þakkað sérstaklega fyrir gott samstarf við að gera Ævintýraeyjuna sem veglegasta. Bylgjan mun svo ásamt Ævintýraeyjunni vera á ferðalagi í sumar og í laugardagsþætti Hemma Gunn verður dregnir út vikulegir vinningar. Ef upp koma spurningar, ábendingar eða kvartanir varðandi leikinn þá bendum við ykkur á að senda fyrirspurn með því að smella á "Hafa samband" hlekkinn hér á forsíðunni. Við munum svo svara eins fljótt og mögulegt er.

Við munum senda út tölvupóst í sumar með nöfnum vinningshafa sem og upplýsingum um allt sem viðkemur leiknum. Það getur því borgað sig að skrá sig á póstlista Ævintýraeyjunnar með því að smella á hlekkinn "Póstlisti" hér á forsíðunni.