Stimpilleikurinn
Ævintýraeyjan er heiti á sumarleik Olís - léttum og skemmtilegum ferðaleik fyrir alla fjölskylduna.
Hvernig virkar leikurinn:
Leikurinn gengur út á að safna stimplum í Ævintýrakortið. Eftir hvern stimpil fær viðskiptavinur glaðning og eftir 8 stimpla fer miðinn hans í pott og á hann þá möguleika á stærri vinningi.
Ævintýrakortið er sent á öll heimili í landinu, en einnig er hægt að fá það á næstu þjónustustöð Olís. Inn í kortið fær viðskiptavinur stimpil í hvert skipti sem hann verslar hjá Olís - alls 8 stimpla í hvert kort.
Athugið að ef um fjölskyldu er að ræða, og ein viðskipti, má stimpla hjá fleiri en einum fjölskyldumeðlim. Til að fá stimpil í stimpilkortið þarf viðskiptavinur að versla vörur að lámarki 500 kr.
Aðalvinningar í lok sumars verða svo dregnir út í þætti Hemma Gunn á Bylgjunni laugardaginn 20. ágúst. Það er því um að gera að fylla út stimpilkortið og skila miðanum á næstu Olísstöð eigi síðar en 17. ágúst. Allir miðar sem hafa verið sendir í sumar fara í pottinn fyrir lokaútdráttinn.
Stimpilvinningar:
Eftir hvern stimpil í Ævintýrakortið fær viðskiptavinur Olís afhentan ævintýraglaðning. Þessir glaðningar eru eftirfarandi: 1. stimpill: Kjörís-Hlunkur, 2. stimpill: Capri-Sonne, 3. stimpill: Bubblicius, 4. stimpill: Prins-Polo, 5. stimpill: Lakkrís-Pipp, 6. stimpill: Lakkrís Draumur, 7. stimpill: KitKat og Mix 0,5l, 8. stimpill: Toppur 0,5 L kippa.
Vikulegir vinningar:
Vikulega í sumar, eða í hverjum laugardagsþætti hjá Hemma Gunn á Bylgjunni, verða dregnir út 2 vinningar. Aðeins er dregið úr full stimpluðum kortum sem hefur verið skilað á einhverja af þjónustustöðvum Olís. Í pottinum eru samtals 10 x 100.000 Vildarpunktar Icelandair, 5 x 50.000 kr. eldsneytisúttekt hjá Olís, 5 x Nokia N8 snjallsímar.
Aðalvinningar:
Laugardaginn 20. ágúst verða dregnir út 3 aðalvinningar. 1. FJÖLSKYLDUFERÐ TIL FLÓRÍDA flug og gisting fyrir 4 2. 200.000 kr. eldsneytisúttekt hjá Olís og 100.000 Vildarpunktar Icelandair 3. 120.000 kr. eldsneytisúttekt hjá Olís og 100.000 Vildarpunktar Icelandair